Félag Álftfirðinga og Seyðfirðinga vestra


Færslur: 2012 Febrúar

22.02.2012 22:00

Þorrablótsmyndir

Jæja albúmin orðin troðfull af myndum frá Þorrablóti félagsins og frá Þorrablótinu í Súðavík.

Það var frábært þorrablót félagsins í Stangarhyl sem haldið var 11.feb s.l. þar sem Raggi Bjarna fór á kostum og sló upp m.a. einum flottasta karlakór á landinu á rétt rúmum 2sekúndum, geri aðrir betur.

Takk til ykkra allra sem komu það var frábært að hitta ykkur öll.  Til hinna sem ekki komust vonumst við til að sjá ykkur á næstu samkomu.


05.02.2012 21:22

Þorrablótið

Frábær skráning á Þorrablótið, ef þú átt eftir að skrá þig er betra að skrá sig strax svo þú fáir örugglega miða.

Hnífapör, servéttur, glös og diskar verða á staðnum, sem og kaffi og konfekt til að renna niður síðasta hákarlsbitanum :-)

Fundur stendur yfir og er búið að ráðgera þrusustuð frá kl 19 til klukkan 2 um nóttina.

Enginn posi er á staðnum svo tveir þúsund karlar og einn fimmhundruð karl þurfa að vera klárir þegar komið er á staðinn.

Sjáumst hress og kát.


05.02.2012 09:31

Súðvíkingar á Café Milanó

Hittumst á Café Mílanó á miðvikudagskvöldið 8.febrúar kl. 20 00. Allir velkomnir.
  • 1
Flettingar í dag: 47
Gestir í dag: 21
Flettingar í gær: 122
Gestir í gær: 26
Samtals flettingar: 130344
Samtals gestir: 36665
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 10:09:13


Um félagið:

Nafn:

Félag Álftfirðinga og Seyðfirðinga vestra

Heimilisfang:

Súðavík

Staðsetning:

Súðavík

Um:

Í félagið eru velkomnir allir þeir, sem fæddir eru í Súðavíkurhreppi, hafa verið eða eru búsettir þar, svo og venslafólk þeirra svo sem makar og börn, svo og aðrir sem áhuga hafa á málum þessa byggðarlags.

Eftirminnilegast:

Súðavík

Kennitala:

451191-2179

Tenglar


Lykilorð

Vilt þú fá lykilorð af síðunni? Allir félagsmenn fá aðgang. Sendu póst á alftaf@simnet.is