Heil og sæl.
Í dag er 1. maí, logn á Álftafirðinum og allt er mjög friðsællt. það er vor í lofti.
Það er ekkert dásamlegar en að fara út snemma morguns og anda að sér ilminum frá sjónum og hlusta á vorfuglana í leiðinni. Það gefur ótrúlegan kraft inn í daginn, maður fær góða tilfinningu fyrir lífinu og tilverunni. Hér er gott að vera. Langaði að deila þessu með ykkur kæru vinir nær og fjær, megi dagurinn færa ykkur gleði og frið. Bestu kveðjur, Lilja Kjartans
Kristín Lilja Kjartansdóttir
14.8.2010 kl. 13:08
Minnisvarði
Í dag verður minnisvarði um sjómennina sem fórust með Draupni,Freyju og Trausta frá Súðavík vígður við Súðavíkurkirkju,en pabbi eins og flestir vita fórst með Trausta 1968. Svakalega er ég ánægð með þetta framtak því í gegnum tíðina hefur verið erfitt að geta ekki lagt blóm aða kerti á ákveðinn stað svo takk fyrir þett...a. Því miður get ég ekki verið viðstödd en hugurinn er fyrir vestan.Kveðja Sóley
Kæru Súðvíkingar. Gleðilegt nýtt ár og þökk fyrir gömlu árin. Megi Guð gefa okkur, að þetta ár 2010 verði ár upprisu frá kreppu og barlómi. Og að okkur takist að kjósa okkur frá Icesave reikningnum.
Við höfum líka verið svolítið löt við að skrifa í gestabókina og að láta í okkur heyra. Nú skulum við snúa við blaðinu og taka okkur penna í hönd og skrifa, þó það væri ekki nema það, að þið séuð á lífa.
Ég var eitt sinn með manni til sjóðs, sem lét mann heyra það ef maður var þungur að vakna. Og ef maður fór ekki fljótlega fram úr kojunni, þá kallaði hann: ,,Halló, ertu ekki í stuði að mæta Guði. Já eru ekki allir í stuði." Þetta svínvirkaði og menn stukku fram úr í stuði tilbúnir að mæta Guði ef það yrði reyndin.
Já, kæru vinir: Eru ekki allir í stuði.
Kær kveðja,
Haddi á Grund.
Hafsteinn Engilbertson
24.7.2009 kl. 17:48
Langaði bara að kvitta og segja að það væri gaman að sjá að Afi (Börkur Ákason) hafði svona mikil áhrif á samfélagið þarna
"það sem ég las í viðtalinu hjá Jónasi Ragnarsyni og Ólafi Guðmunds"
Virkilega gaman að hafa rekist á þessa síðu í dag þegar ég var að googla Súðavíkina og frábært að lesa viðtalið við Imbu ;)) hlakka til að koma í heimsókn í sumar. kv Sveina (Sveinbjörns Kristjánssonar á Litla bæ)
Flott heimasíða hjá þér Una, flottar breytingar á flottri síðu.
Imba Frosta
22.3.2009 kl. 2:20
Hví skrifar enginn í gestabókina?
Það er að verða um eitt ár síðan Láki Kjartans skrifaði síðast í gestabókina. Hvað veldur því? Leti eða áhugaleysi á síðunni. Tökum okkur nú taki og látum í okkur heyra, meðal annars hvað okkur finnst um síðuna og komum með uppástungur um það sem okkur finnst að ætti að vera á síðunni. Og/eða það sem ykkur finnst vera gott. Eða hvaðeina sem ykkur langar að tjá ykkur um. Látum hendur standa fram úr ermum og spilum á lyklaborðið orðin fín.
Haddi á Grund.
Hafsteinn Engilbertson
15.4.2008 kl. 21:13
Heimasíðan
Heimasíða þessi er altaf að verða betri og betri og góð var hún fyrir. Viðtölin eru frábær og um að gera að reyna að grafa upp hálfgleymda sveitunga og einnig fólk úr Seyðis- og Skötufirði,Vigur,Ögur og fleiri stöðum frá Djúpi. Hún Una Sigurðar á miklar þakkir skilið fyrir þá miklu vinnu sem liggur bak við að halda svona síðu úti.
Láki Kjartans
20.3.2008 kl. 20:38
Frábært :)
Gaman að lesa viðtölin við stelpurnar og hlakka til að lesa hvað næstu viðmælendur segja :) kveðja Dóra Björk
hæ ég vil bara spyrja,'eg hef sótt um aðgang að síðunni en hef ekki fengið neitt lykilorð sent...kveðja setta
sesselja þorðard.
3.3.2008 kl. 15:24
gaman að lesa
Takk fyrir gott efni á síðunni sem gaman er að lesa og skoða, en varðandi gestabókina verður maður að taka síg á þó ekki væri nema til að segja halló og bless. Sniðugt að fá einhvern i viðtal mánaðarlega. Áfram Vefstýra. :)
Til hamingju með þessa flottu síðu, það er gaman að vera loksins orðinn meðlimur í félaginu og fá að fylgjast með.
kv
Berglind Ósk Kristjánsdóttir (Albertssonar)
Þó svo að ég hafi aldrei búið í Súðavík þá held ég að ég hafi fæðst og verið alin upp sem Súðvíkingur:) Fallegasti staður á jörðinni. Frábær lesning, fallegar myndir.
Kristín dóttir Guðrúnar á stöðinni
Kristín Ólafsdóttir
26.11.2007 kl. 22:14
Til hamingju með nýja heimasíðu
Til hamingju með nýju síðuna!Gaman að sjá að hann Þorkell Hjörleifsson er komin með aðgang. Ég las bréf á síðasta fundi ,,Bygging samkomuhúsins í Súðavík"sem er skráð af föður hans Hjörleifi frá Hærri Saurum. Bréfið fékk ég hjá Þorkeli. Þökk sé honum fyrir að varðveita bréfið og láta mig fá það.Þvílíkur fróðleikur fyrir okkur Súðvíkinga og fl.Takk Doddi!
Svanfríður G. Gíslad
23.11.2007 kl. 23:54
Frábær heimasíða
Innilegar þakkir fyrir veittan aðgang að síðu. Virkileg áhugaverð heimasíða.
Þorkell Hjörleifsson
28.10.2007 kl. 22:13
mayahabby@simnet.is
mikið er gaman að lesa ljóð og sögur eftir Hadda á grund fallegar sögur og ljóð!
maría
16.5.2007 kl. 15:34
Til sölu.leigu
Álfabyggð.3 420
Til sölu.eða leigu
stór glæsilgt einb sjón er sögu rýkari
upp Kristinn síma 4564826
Kristinn Hermannsson
28.12.2006 kl. 22:58
Hreyfimyndir
Frábært að hafa svona hreyfimyndir á heimasíðuhausnum, vonandi koma bara fleiri.
Láki.
Láki Kjartans
13.11.2006 kl. 2:14
Til hamingju með síðuna
Já, til hamingju með nýju síðuna. Hún er mjög góð og þægileg í notkun.
Það er líka frábært að hafa svona síðu, sem getur leitt mann hvenær sem maður vill, í máli og myndum, á æskustöðvarnar. Enda nota ég hana mikið.
Kærar þakkir fyrir allt það efni sem búið er að setja inn á vefinn. Allt þetta gerir mig glaðan.
Ég var að lesa félagatalið og sá ekki nafn mitt þar? Er þetta gamalt félagatal?
Með kærri kveðju,
(Haddi á Grund)
Hafsteinn Engilbertsson
6.11.2006 kl. 15:42
Hjartanlegar hamingju óskir með nýju síðuna, hún er bara frábær. Endilega skoðið þið nýju heimasíðu Súðavíkurhrepps þar eru núna fullt, fullt af nýjum myndum.
Kveðja
Anna Lind
Anna Lind
6.11.2006 kl. 8:22
Flott síða:)
Til hamingju með nýju síðuna og gaman að fá að fylgjast með því sem er að gerast.
Kveðjur. Anna María
Anna María
5.11.2006 kl. 21:01
Frábær og flott
Frábær og flott heimsíða hjá þér Una.
Það er ekki ónýtt fyrir félagið að eiga svona góða að til að sjá um þessi mál
Félagsmenn til hamingju og verið dugleg við að skrifa og eða senda myndir.
Láki
Þorlákur Kjartansson
30.10.2006 kl. 23:07
Til hamingju með nýju síðuna Una og allir félagar í Félagi Álftfirðinga- og Seyðfirðinga vestra.
Kveðjur!
Bjarnveig Bjarnadóttir
(Badda)
Í félagið eru velkomnir allir þeir, sem fæddir eru í Súðavíkurhreppi, hafa verið eða eru búsettir þar, svo og venslafólk þeirra svo sem makar og börn, svo og aðrir sem áhuga hafa á málum þessa byggðarlags.