05.02.2012 21:22
Frábær skráning á Þorrablótið, ef þú átt eftir að skrá þig er betra að skrá sig strax svo þú fáir örugglega miða.
Hnífapör, servéttur, glös og diskar verða á staðnum, sem og kaffi og konfekt til að renna niður síðasta hákarlsbitanum :-)
Fundur stendur yfir og er búið að ráðgera þrusustuð frá kl 19 til klukkan 2 um nóttina.
Enginn posi er á staðnum svo tveir þúsund karlar og einn fimmhundruð karl þurfa að vera klárir þegar komið er á staðinn.
Sjáumst hress og kát.
05.02.2012 09:31
Hittumst á Café Mílanó á miðvikudagskvöldið 8.febrúar kl. 20 00.
Allir velkomnir.